Dagbókin mín

Dagbókin mín eða í raun heilinn minn... Ég hef alltaf ELSKAÐ BLÖÐ, já blöð. Spurjið foreldra mína, skemmtilegasta sem ég vissi þegar mamma var í háskólanum var að fá blöð sem voru uppköst af ritgerðum til að leika mér með.. sko flokka blöðin og já ég var 6 ára þegar mamma byrjaði í háskólanum. Skipulag er því eitthvað sem hefur alltaf heillað mig og er ég því gríðalega þakklát í dag. 

Ég er samt búin að læra að skipulagið á að vera stuðningurinn minn EKKI LÍFIÐ MITT. Það fer ekki allt eftir áætluninni þinni en alltaf gott að hafa stuðning sem grípur mann.

Það er því hægt að segja að það sem ég elska hvað mest við nýtt ár er ný dagbók og nýtt upphaf.. hvítar óútfylltar síður, kannski ekki eðlilegt en meðan ég skrifa þetta fæ ég kítl í magann. En ég hef skoðað þær margar dagbækurnar, eytt peningum í misgáfulegar hugmyndir og jafnvel nokkrar dagbækur á einu ári. Á þessu ári ætlaði ég að nota einhverja dagbók sem ég man ekki lengur því í maí gat ég ekki hætt að hugsa um "Passion Planner" sem ég sá hjá vinkonu minni og pantaði hana á miðju ári óútfyllta. (og þær eru 3 búnar að panta hana eftir að þær sáu mína)

Ég ætla ekki að sýna allt úr minni bók því hún er persónuleg, en maður byrjar á :
- Að skrifa hvað maður ætlar að áorka þetta árið
- Hver eða hvað hefur mesta hvatningu á mann
- Setningar eða orð sem hvetja mann áfram á erfiðum tímum

Síðan er óskalisti sem er eins og hugtakakort, maður fær 5 mínotur að skrifa hvað manni langar að gera á næstu 3 mánuðum, 1 ári, 3 árum og á lífsleyðinni. Þarna á maður ekki hafa nein mörk á sér og hugsa ég get þetta ekki vegna þess að...

Þarna lærði ég til dæmis að mig langaði að blogga um lífið mitt og hafa áhrif, ég ákvað alltaf að ég gæti ekki tjáð mig á skrifuðu máli því ég er lesblind.

Útfrá þessu hugtaka korti vinnur maður svo mörg verkefni í viðbót.

Ég skrifa ALLT í dagbókina mína, þegar ég er ekki dugleg að nota hana fer allt í klúður hjá mér og þessvegna ætla ég að setja smá pressu á mig og sýna ykkur hérna í byrjun hvers mánaðar og hverrar viku hver mín áform eru. Það ætti að gagnast mér og ykkur. Ennþá betra er það að ég er alveg á byrjunarreit andlega og líkamlega eftir áföll þessa árs. Þá getið þið fylgst með þessu ferðalagi.

Myndin efst er þessi vika, ég er að byrja að koma mér í rútínu eftir svefnlitlar nætur síðustu vikur og þessvegna er fókusinn minn þessa vikuna á morgunrútínuna mína hvernig ég fæ sem mest út úr morgninum. Ég er einnig með to-do lista og vana lista en ég lofa að sýna þetta ýtarlega eftir viku.

En þeir hlutir sem ég kláraði ekki í síðustu viku komu með mér í þessa viku, ég finn að ég þoli ekki að hafa verkefni hangandi yfir mér þessvegna reyni ég að klára það sem fyrst en oft dett ég í frestunargírinn sem er vondur fyrir andlega heilsu.

En meira upp Passion Planner

Heimasíðan

Youtube myndband um stelpuna sem bjó bókina til.

Það sem mér finnst líka mikill plús við þessa bók er að þegar maður kaupir hana fær maður aðgang að læstu vefsvæði sem eru allskonar viðbætur sem maður getur prentað út fyrir bókina. Líka það að hún var ekkert dýrari en flottar dagbækur hérna heima.

Kærleikskveðja
Karen Ösp (skipulagsperri)